| Nýsköpun og framþróun |
|
|
Ferðaþjónustan sem atvinnugrein, eru í raun margar atvinnugreinar án landamæra. Ferðamaðurinn sem heimsækir landið, kaupir þjónustu og dvelur hér mislengi – er sá sem mótar ferðamennskuna; óskir, þarfir og væntingar til þjónustu sem veitt er af rekstrareiningum, stórum sem smáum um allt land. Markhópur (e.target group), er lykilhugtak þegar kemur að markaðssetningu. Þá gildir einu hvort markhópurinn eru líklegir kaupendur á heimamarkaði eða eru búsettir í útlöndum. Forvinnan; undirbúningur, skipulag og þróun, nýsköpun, áætlanagerð og stefnumótun (markmiðasetning), eru nauðsynleg til að ná árangri. Greining markhópsins og markaðshlutun (e. market segmentation) er og nauðsynleg til að gera markaðsstarfið skilvirkara og markvissara. Hugtökin; nýsköpun, skipulag og framþróun, eru mikilvæg í umfjöllun um markaðsmál. Án skipulags verður lítið úr verki. Samþætta þarf allt markaðsstarfið við aðrar rekstrarforendur og markmið, eins þarf að gæta að þróun og nýsköpun, frumkvæði og sveigjanleika þegar kemur að því að þjónusta ferðamenn sem allir hafa sínar þarfir og væntingar. Meirihluti þess sem ferðamaður kaupir á áfangastað; er upplifun og þjónusta. Þess þarf að gæta þegar unnið er að skipulagi og þróun í ferðaþjónustu. Veitum því athygli að ferðaþjónusta snýst um fólk, öðru fremur. Forsenda framtíðar í ferðamennsku liggur vafalaust í tækifærum nýsköpunar og þróunar út frá auðlindum ferðamennskunnar í víðu samhengi. Ferðaþjónustan þarf eins og aðrar aðvinnugreinar að fylgjast með í samkeppninni og stunda öfluga nýsköpun til að staðir sem og svæði haldi aðdráttarafli sínu og komist hjá því að fara í gegnum hnignunarskeið þegar dregur úr aðdráttaraflinu. Eins þarf að sinna þróun í takt við kröfur ferðamannsins á hverjum tíma. Við tökum þátt í nýsköpunarverkefnum sem stuðla að framþróun og umbreytingum í átt að öflugri ferðaþjónustu í sátt við umhverfi og samfélag.
|


