| Ferðamarkaðsmál |
|
|
Áratuga reynsla á sviði markaðsmála, kynningarmála og almannatengsla auk grafískrar hönnunar, segir nokkuð um þá sérfræðiþekkingu sem býr að baki þeim þjónustuþáttum sem snúa beint að ferðamálum. Háskólamenntun á sviði ferðamálafræða, tengir saman huglægar forsendur og hlutlægan veruleika, sem mótast í atvinnugrein sem við köllum ferðaþjónustu. Sérþekking á ferðamálum, hefur skírskotun í atvinnugreinina sem og í ferðamennskuna þ.e. athafnir ferðamannanna sjálfra. Í hugtakinu ferðamarkaðsmál, sameinast allt sem fellur undir markaðsfræðin og tengist með einum eða öðrum hætti ferðaþjónustu og ferðamennsku, þ.e. ferðamálum. Til að gefa gleggri mynd af umfanginu má nefna t.d.: markaðsrannsóknir (viðhorfs og skoðanakannanir), stöðumat, þarfagreiningu og auðlindamat, stefnumótun og markmiðasetningu, markaðsáætlun og aðgerðaáætlun, endurmat og eftirfylgni, auglýsingastefnu og kynningaráætlun, almannatengsl og upplýsingamiðlun, grafíska hönnun, auglýsingagerð og ímynd. Markaðsmál eru að stórum hluta sölumennska, þ.e. ferli sem unnið er til að selja vöru eða þjónustu. Sérfræðiþjónustu á þessu sviði, miðar að samþættingu allra þeirra þátta sem til greina koma til að hámarka tekjur af starfseminni. Sjá nánar tengd málefni undir liðnum NÝSKÖPUN OG FRAMÞRÓUN. Vakin er sérstök athygli á liðnum HEILDARLAUSNIR. Við erum samstarfsaðilar í ferðamarkaðsmálum almennt, og gildir þá einu hvort markhópurinn er innanlands eða á alþjóðlegum vettvangi.
|


