| Hönnun |
|
|
Hvert sem litið er, hvað sem við gerum, hvar sem við erum; hönnun er allt í kringum okkur. Hönnun í viðskiptalegum tilgangi (e. Commercial Graphic Design), er margbrotin og fjölþætt, enda eru verkefnin af ýmsum toga. Hann þarf bæklinga, ársskýrslur, fréttablöð, kynningarefni, umbúðir, útsendiefni, merki, skilti, fána, merkingar á bíla, bréfsefni og önnur pappírsgögn, möppur, vörulista, heimasíður, sýningarbása, kynningarstanda, bækur og bókarkápur, útlit verslana, og að sjálfsögðu auglýsingar af ýmsu tagi, svo eitthvað sé nefnt. Vefhönnun í dag er bæði nauðsynleg og mikilvæg. því rekstur án heimasíðu, sem er bæði skýr og smekkleg, tilheyrir varla veruleikanum. Vefurinn er í senn andlit og upplýsingaveita fyrir vörur og þjónustu, sem sannar notagildi sitt ef rétt er að málum staðið. Því er mikilvægt að vanda allan undirbúning, hönnun og frágang svo heimasíðan þjóni tilgangi sínum. Almenn grafísk hönnun, þ.m.t. vefhönnun og uppsetningu heimasíða í vefumsjónarkerfi. Umbúðahönnun, veggspjöld, heildarútlit, auglýsingar og bæklingar, fánar og allt hitt...
|


