|
Að lengja ferðamannatímann |
|
|
mánudagur, 24 ágúst 2009 |
Við tölum gjarnan um að íslenska sumarið sé stutt, aðeins 3 mánuðir; júní, júlí og ágúst. Ferðaþjónustan býr við rekstrarumhverfi sem minnir á vertíð, mestu viðskiptin eiga sér að jafnaði stað yfir sumarið þótt fyrirtækin séu flest starfandi allt árið og þjóna ferðamönnum sem koma á til landsins utan annatíma á öðrum árstíðum.
Þessu til staðfestingar er fróðlegt að skoða tölur yfir fjölda erlendra gesta sem fóru frá Leifsstöð í júlí 2009; alls 82.000 ferðamenn. Þetta eru gróflega tæp 20% af heildarkomum erlendra ferðamanna yfir árið. Gaman að gera ráð fyrir svipuðum fjölda alla sumarmánuðina og segja að þá komi um 60% heildarfjöldans. Hin 40 prósentin koma á 9 mánuðum / haustið, veturinn og vorið.
Ég vil sjá aukningu utan háannar en ekki önnur hlutföll. Þar liggur vöxturinn og framtíðin í íslenskri ferðaþjónustu. Í dag nálgumst við æskilegan hámarksfjölda yfir sumarmánuðina – því álagsþolið er ekki ótakmarkað, hvorki í umhverfi né á þjóðina. Gætum að því að ekki eru svo mörg ár síðan heildarfjöldi erlendra ferðamanna var um 240 þúsund, þ.e. sá fjöldi sem nú kemur yfr sumarið!
|