|
Naumhyggja í ferðamennsku |
|
|
miðvikudagur, 06 maí 2009 |
Svo gæti farið að naumhyggja fái nýja merkingu í sumar. Ferðalög verða án efa á forsendum aðhalds og sparnaðar hjá mörgum sem leggja land undir fót og ætla með fjölskylduna í tjaldferð eins og var svo móðins hér áður fyrr, þegar enginn átti fellihýsi, hjólhýsi eða ferðabíl með lúxusinnréttingu. Þá var ferðlagið einfalt og sniðið að þörfum tjaldbúa sem lifðu einföldu lífi á tjaldsvæði eða skjólgóðum, sólríkum stað einhvers staðar í fallegu landslagi. Margir eiga eflaust eftir að leita gamla tjaldið uppi í geymslunni – ferðast með naumhyggju-hugarfari, og njóta þess jafnvel enn betur að ferðast.
|