Að ferðast um eigið land í sumar Prenta
þriðjudagur, 05 maí 2009
Það er eiginlega augljóst að við munum ferðast um eigið land sem aldrei fyrr, sumarið 2009. Nú þegar efnahagsástandið er bágborið og gengisþróun gefur ekki fyrirheit um ódýrt uppihald í útlöndum, munum við fjölmenna í ferðalög um ÍSLAND í sumar. Fyrirsjáanlegur er samdráttur í sölu sumarleyfisferða til útlanda er jafn augljós og verulega aukning í ferðalögum um heimalandið, en ímynd íslenskrar ferðaþjónustu truflar mig; það er dýrt að ferðast innanlands. Það vita íbúar landsins.

Aðspurðir munu Íslendingar vafalaust segjast ætla í ferðalag um landið sitt í sumar, en fyrirsjáanlega munu þessir sömu ferðamenn gera raunhæfan samanburð og komast að hinu sanna í málinu. Bera saman heildarkostnað við ferðalag til útlanda og ferðalag innanlands. Reikna dæmið til enda og komast að niðurstöðu.

Ég hræðist þennan samanburð þrátt fyrir gengisþróun og verðlag í útlöndum. Vonandi verður reikningsdæmið íslenskri ferðaþjónustu í hag þegar allt er talið, en þeir verða líka margir sem reikna með óhagstæðu verðlagi hér innanlands sem er jafntengt innlendri ferðaþjónustunni eins og fallegt landslag.

Nú er kærkomið tækifæri til að nota öll fellihýsin, hjólhýsin, húsbílana og ferðabíla af öllum stærðum og gerðum; ferðast ódýrt og njóta þess besta sem íslensk ferðaþjónusta hefur upp á að bjóða. Dæmið kemur út í plús, við þurfum engan gjaldeyri ef við höldum okkur heima, við styrkjum ferðaþjónustuna í nær- og fjærumherfi á hagrænum forsendum.

Ekki viljum við heldur að sumarleyfisferðir til útlanda leggist af, því rekstur flugfélaga/skipafélaga og ferðaskrifstofa er þjóðhagslega mikilvægur. Nú munu þessi fyrirtæki leggja meiri áherslu á innflutning ferðamanna en útflutning, af augljósum ástæðum sem vekja okkur til vitundar um gildi ferðaþjónustunnar  til framtíðar á Íslandi.
 
< Fyrri   Næsti >


Marketing and Tourism Consulting


Perfect ehf. Erling Elís Erlingsson ferðamálafræðingur og markaðsráðgjafi / farsími 821-1100 / vinnustofa 587-6100 / erling@perfect.is