| Auglýsingar |
|
|
Allt í kringum okkur eru auglýsingar; við morgunverðarborðið blasa við okkur auglýsingar á umbúðum matvæla, skilti blasa við okkkur á verslunarhúsum og á sérstökum auglýsingaskiltum utandyra, bílar eru margir hverjir akandi auglýsing, stórar auglýsingar eru á almenningsvögnum og sendibílum, burðarpokar verslana blasa hvarvetna við með auglýsingum, fatnaður er merktur framleiðendum, vöruumbúðir almennt eru í kapphlaupi um athygli og ímynd, aðkoma fyrirtækja og umgjörð þeirra er auglýsing (slæm eða góð), símsvörun og viðmót starfsfólks er gildi auglýsingar, íþróttafélög stunda auglýsingar í miklum mæli, á veraldarvefnum er allt fljótandi í auglýsingum, dagblöð og tímarit eru vitaskuld full af auglýsingum, útvarpsrásir sem og sjónavarðsstöðvar keppast um auglýsendur svo vart er hlustandi á útvarp eða horfandi á sjónvarp án truflunar. Auglýsingagerð og miðlun auglýsingabirtinga tekur í dag mið af þróun á markaði. Miðlar hafa aldrei verið fleiri og auglýsingagerðin fjölbreyttari að innihaldi og umfangi en áður. Alþjóðavæðingin setur og mark sitt á auglýsingaheiminn, Ísland er engin undantekning. Nú þykja netauglýsingar sjálfsagðar og íslensk fyrirtæki auglýsa vörur sínar og þjónustu í vaxandi mæli í öðrum löndum. Auglýsingagerðin mun eftirleiðis sem hingað til, byggjast á góðum hugmyndum, ella verður innihaldið bragðlaust og rýrt, eftirtektarlaust og gerir lítið gagn (og jafnvel skaða). Að auglýsa of mikið er sóun að auglýsa of lítið er dýrt að auglýsa nægilega – er skynsamlegt Að auglýsa ekkert – getur verið afdrifaríkt (ee) |


