Kynningarmál Prenta
Með aðgreiningu almannatengsla og kynningarmála, getum við betur áttað okkur á umfangi óbeinna auglýsinga. Almannatengslin snúast um upplýsingamiðlun, en kynningarmál um umgjörð og innihald í þeim boðskap sem framreiddur er til að kynna vöru/þjónustu/boðskap/hugmynd. Kynningarmálin eru því mikilvægur hlekkur í markaðsmálum og skoðast sem órjúfanlegur hluti daglegs lífs. Allt í kringum okkur er verið að kynna fyrir okkur eitt og annað; s.s. holla hreyfingu og hollustu, nýjar afurðir/vörur, nýjar uppgötvanir, álitsgerðir og ýmsar niðurstöður – allt sett í búning – skýrslur, bæklinga eða aðra miðla.

Eitt birtingarform kynningarmála er bein markaðssetning (e. Direct marketing), sem gerð eru nánari skil í kaflanum um beina markaðssetningu.

Kynningarmál, hönnun, umsjón og skipulagi fyrir öll tilefni.
 


Marketing and Tourism Consulting


Perfect ehf. Erling Elís Erlingsson ferðamálafræðingur og markaðsráðgjafi / farsími 821-1100 / vinnustofa 587-6100 / erling@perfect.is