| Heildarlausnir |
|
|
Heildarlausnir ætlaðar hagsmunaaðilum, sveitarfélögum og öðrum rekstraraðilum Með ferðamálavakt gefst aðilum kostur á hagkvæmu samráði í umsjón, skipulagi, stefnumörkun, áætlanagerð og framkvæmd ferðamála í nærumhverfinu, ásamt samráði við hagsmunaaðila og opinbera aðila í nær- og fjærumhverfinu eftir atvikum. Ferðamálavaktin gerir ráð fyrir samþættingu framkvæmdaáætlunar og markaðs- og kynningarstefnu með öflugu og markvissu samstarfi. Einnig er rík áhersla lögð á almannatengsl/fréttamiðlun og upplýsingamiðlun. Þjónustuþættir í ferðamálavakt eru samningsatriði. FERÐAMÁLAÁÆTLUN Með ferðamálaáætlun er aðilum gert mögulegt að kanna grundvöll fyrir ferðaþjónustu án þess að leggja í umtalsverðan kostnað við stefnumótun. Gerð er áætlun (Ferðamálaáætlun) í 6 liðum. Af niðurstöðum ferðamálaáætlunar geta aðilar ákveðið að halda áfram og unnið að stefnumótun í ferðamálum eða gert framkvæmdaáætlun (þ.m.t. markaðs- og kynningaráætlun) strax að lokinni ferðamálaáætlun. Þannig geta aðilar, sveitarfélög sem aðrir rekstraraðilar markað sér stefnu í ferðamálum án þess að leggja í kostnaðarsama og tímafreka stefnumótunarvinnu. Þessi leið er ekki síður heppileg þeim sveitarfélögum sem hyggja á eða hafa stofnað til samstarfs innan landsvæðis (landshluta) á sviði ferðamála. FERÐAMÁLASTEFNUMÓTUN FYRIR SVEITARFÉLÖG OG LANDSVÆÐI Stefnumarkandi áætlanagerð í ferðamálum er nákvæm greining og þrepskipt áætlun um ferðaþjónustu og möguleika hennar til framtíðar. Slík stefnumótunarvinna felur m.a. í sér samráð hagsmunaaðila, þ.m.t. ferðamanna og íbúa, greiningu á núverandi stöðu, gerð auðlindamats, SVÓT-greiningu á styrkleikum/veikleikum/ógnunum/tækifærum, markmiðasetningu, markópagreiningu, markaðshlutun, aðgerðaáætlun/framkvæmdaáætlun ásamt áætlun um eftirfylgni, árangursmat og endurskoðun allra þátta. Lögð er áhersla á aðstæður í nær- og fjærumhverfinu sveitarfélagsins/svæðisins, hlutverki þess sem grunneiningar í ferðaþjónustunni og þeim fjölmörgu áhrifaþáttum sem móta stefnuna. Vinna við stefnumótun er sniðin að aðstæðum og umfangi á hverjum stað/svæði. Markaðs- og kynningaráætlun er hluti framkvæmdaáætlunar. Ferðamálastefnumótun er umfangsmikil og nákvæm vinna sem leiðir til stefnumarkandi áætlanagerðar í ferðamálum. Möguleiki er á einfaldari og ódýrari leið, sjá nánar Ferðamálaáætlun. FERÐAMÁLAKYNNING Meira en 25 ára reynsla af markaðsráðgjöf, grafískri hönnun, fréttamiðlun/almannatengslum, veitir innsýn í fjölmarga mikilvæga þætti markaðssetningar sem nauðsynlegir eru til að ná árangri í atvinnugrein sem byggir á ferðamennsku og kennd er við ferðaþjónustu (e. Tourism industry). Veitt er alhliða markaðsþjónusta sem tekur til m.a. eftirfarandi þátta: Heimasíðugerðar (vefhönnun), auglýsingagerðar, umsjón auglýsingabirtinga/birtingaáætlun, hönnun kynningarefnis, hönnun sýningarbása/sýningardeilda, hönnun heildarútlits, ljósmyndun, skiltahönnun, merkjahönnun, gerð fréttatilkynninga, umsjón með fréttablaðaútgáfu, textagerð, skipulag funda/kynninga og síðast en ekki síst öll almenn og viðeigandi markaðsráðgjöf með tilheyrandi áætlanagerð. Umsjón og verkstjórn á sviði markaðsmála fellur undir Ferðamálakynningu. Sjá nánar Ferðamálavakt.
|


