Menning og ferðaþjónusta Prenta
Í menningu hverrar þjóðar felast mikil verðmæti, þar liggja fótsporin sem móta tíðarandann og skapa umgjörð lífshátta á hverjum stað. Þar er vettvangur fólksins, leikvöllur veruleikans með þegnana í aðalhlutverki, daglegt amstur sem og upplifun og listsköpun – allt tónverkið, frá vöggu til grafar.

Ferðamennskan nærist á menningarupplifun, sem blasir við í hverju samfélagi – og birtist okkur í umgjörð samfélagsins, arfleifðinni og hefðum, tungumálinu og uppruna þegnanna, lífsháttum og aðbúnaði, viðmóti fólksins og gestrisni, umhverfinu og aðlögun að staðháttum, fortíð þjóðarinnar og sögu hennar, stjórnskipan og hagrænum gildum, atvinnuháttum og þróun... svo eitthvað sé nefnt.

Menning hverrar þjóðar er hornsteinn ferðaþjónustunnar, það er fólkið sem mótar samfélögin sem ferðamenn koma til að kynnast, og það er fólkið sem myndar þær einingar/stofnanir samfélagsins sem gerir þau áhugaverð og þess virði að heimsækja. Fólkið sjálft mótar menninguna og þann lífstakt sem flæðir um sérhvert samfélag, glæðir það lífi eins og fjölskrúðugur blómakur – í öllum regnbogans litum!

Menning og ferðaþjónusta eru tengd órjúfanlegum böndum. 

Við skipuleggjum viðurði og hátíðir, átaksverkefni, markaðs- og kynningarmál á sviði menningar í heild sinni.


 


Marketing and Tourism Consulting


Perfect ehf. Erling Elís Erlingsson ferðamálafræðingur og markaðsráðgjafi / farsími 821-1100 / vinnustofa 587-6100 / erling@perfect.is