Vistvæn ferðamennska Prenta
Mörgum þykir það vafalaust undarlegt að ekki skuli vera meiri áhersla lögð á VISTVÆNA FERÐAMENNSKU á Íslandi. Svo mikil eru náttúruauðævin, óbyggðirnar endalausar, tærleiki loftsins og hreinleiki vatnsins. Stór hluti landsins, þar með talin ósnortin víðerni, út um allt land, hafa slíkt aðdráttarafl að útlendingar gapa af undrun. Finnst við vera svo rík að eiga þetta fallega land. Landið sem við þekkjum svo vel en eigum kannksi erfiðara með að færa í umbúðir – eins og söluvarning á markaðstorgi. 

Einhver gæti nú sagt; auðvitað erum við með vistvæna ferðamennsku, auglýsum náttúruna endalaust. En það er varla nóg til að skapa landinu þá ímynd sem hæfir ferðamennsku með grænum stimpli, sem hin síðari ár hefur vaxið gríðarlega. Þörfin fyrir fræðandi ferðalög og ferðalög til staða með ósnortna náttúru eiga nú meiri vinsældum að fagna en nokkru sinni fyrr. Þessi þróun hefur leitt til þess að vakning hefur orðið hjá ferðaþjónustuaðilum sem keppast við að uppfylla þarfir markaðarins – og mála sig græna í tilefni dagsins!

Ekki dugar að sýnast grænn. Það dugar skammt að halda á grænum fána rétt á meðan ferðamenn ganga hjá, við verðum að ganga alla leið og skipuleggja ferðamennsku fyrir þann ört stækkandi markhóp sem velur sér umhverfisvænar forsendur á ferðalögum sínum – hefur tileinkað sér vistvænan ferðamáta og vill upplifa áfangastaðinn í samræmi við væntingar sínar.

Við snúum ekki blaðinu við á einni nóttu. En við gætum lagt meiri áherslu á afurðaþróun og þjónustu við ferðamenn á vistvænum forsendum, þó ekki væri nema að hluta til og þá sérstaklega á viðkvæmum stöðum – þeim landsvæðum sem þykja eftirsóknarverð – með víðerni og náttúrulega upplifun í hávegum.

Íslenskri ferðaþjónustu ber að virða landið – umhverfið á sjálfbærum forsendum, umvefja það verndarhendi og beita markaðssetningu af alúð og vandvirkni svo landið hljóti ekki skaða af. Með vistvænni ferðamennsku ætti okkur að takast enn frekar að skapa okkur sérstöðu í samkeppni þjóðanna um ferðamanninn, enda ekki fyrirsjáanlegar breytingar á þeirri staðreynd að flestir sem hingað koma, eru í leit að ósnortinni náttúru landsins!

Markaðs- og ferðamálaráðgjöf í sátt við umhverfi og samfélag.
 


Marketing and Tourism Consulting


Perfect ehf. Erling Elís Erlingsson ferðamálafræðingur og markaðsráðgjafi / farsími 821-1100 / vinnustofa 587-6100 / erling@perfect.is