Stöðumat og eftirfylgni Prenta
Aðskilnaður stefnumótunar í ferðamálum og markaðs- og kynningaráætlunar, er ekki æskilegur að minni hyggju, frekar en aðskilnaður stefnumótunar og framkvæmaáætlunar.

Í framkvæmdaáætlun felst áframhaldandi vinnuáætlun, en reynslan sýnir að ferðaþjónustuaðilar hafa mismunandi hagsmuni af skjótverkandi aðgerðum og þar með beinskeittari markaðsáætlun og kynningarstefnu.
Stefnumarkandi áætlun (e. Strategic Planning), er stefnumótun í stöðugri endurskoðun, sem gerir það að verkum að hægt er að aðlaga stefnuna/markmiðin að aðstæðum á hverjum tíma.

Svo stefnumótunin verði markviss og raunhæf, þarf vitaskuld að gera aðgerðaáætlun um framkvæmdir/aðgerðir svo árangur verði sem mestur og skilvirkni tryggð. Mikilvægt er að eftirfylgnin sé tryggð sem og árangursmæling með reglulegum hætti.

Það er tilgangslaust að stofna til stefnumótunar og aðskilja framkvæmdaáætlun um næstu skref. Markaðs- og kynningaráætlun er rökrétt framhald.

Stefnumótunarferlið sem og aðrar lausnir sem byggja á aðgerðaáætlun og tengjast skipulagi og þróun ferðamála, eru sniðnar að þörfum hagsmunaaðila í samfélagi þar sem fyrirtæki eru margbrotin og fjölbreytt að stærð og umfangi. Þessi fjölbreytileiki kallar á verkefnaumsjón/verkstjórn, svo allir hagsmunaaðilar sitji við sama borð og njóti ávaxtanna í sameiningu.
Regulegt stöðumat er nauðsynlegt sem og eftirfylgni á öllum sviðum.

Nánar er vísað í kaflann um heildarlausnir.

Stefnumótun, áætlanir og verkstjórn. Umsjón og eftirfylgni eftir samkomulagi.
 


Marketing and Tourism Consulting


Perfect ehf. Erling Elís Erlingsson ferðamálafræðingur og markaðsráðgjafi / farsími 821-1100 / vinnustofa 587-6100 / erling@perfect.is