Stefnumótun / stefnumarkandi áætlanir Prenta
Auður þjóðarinnar er háður okkar mannanna verkum; nýtingu, umgengni, skipulagi og þróun. Það erum við sjálf sem stjórnum ferðinni, tökum ákvarðanir og leggjum línurnar til framtíðar á mörgum sviðum. Við byggjum afkomu okkar á skynsamlegri nýtingu í sátt við náttúruna – umhverfið allt og fólkið í landinu.

Þegar mannleg hugsun og atferli mótar framtíðina, umhverfi okkar og tilvist, er líklegt að vi viljum standa vel að verki. Skipuleggja og samræma aðgerðir okkar svo þær gagnist okkur sem best í framtíðinni. Okkur er nauðsynlegt að horfa til framtíðar og reyna eftir mætti að sjá fyrir þróun og breytingar til að minnka áhættuna og auka velsæld. Efnishyggjan og verðmætamat er ofarlega i hugum margra, þvíi er okkur tamt að hlutgera allt umhverfi okkar og leggja á það mat frá hagrænum gildum.

Stefnumótun er lykill að velferð fyrir okkur öll, þannig getum við lýst vilja okkar til að móta núverandi umhverfi okkar, svo tilvist sem byggir á fortíð, nútíð og framtíð verði okkur að skapi.
 


Marketing and Tourism Consulting


Perfect ehf. Erling Elís Erlingsson ferðamálafræðingur og markaðsráðgjafi / farsími 821-1100 / vinnustofa 587-6100 / erling@perfect.is