| Um fyrirtækið |
![]() Margbreytileiki markaðsmálanna er mér hugleikinn, og birtist í reynslu minni á löngum ferli á sviði ráðgjafar í markaðs- og sölumálum, fréttamiðlun/almannatengslum, kynningarmálum, auglýsingahönnun og grafískri hönnun almennt auk vinnu við skipulag, eftirfylgni, áætlanir, kannanir/viðhorfskannanir og verkefnaumsjón á þessum sviðum. Menning, ferðamálefni, atvinnuþróun, nýsköpun, lýðfræði, markaðsmál og byggðamál; sameinast í ferðamálafræðinni sem samofin heild, enda er ferðaþjónustan ekki ein atvinnugrein, heldur er hugtakið alltumfaðmandi og gerir ekki greinarmun á einstökum þáttum innan greinarinnar. Viðskiptavinirnir teljast rúmlega 100 talsins. Þar á meðal eru verslanir, innflytjendur, stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki í fjölbreyttum rekstri. Hér eru talin nokkur af þeim fyrirtækjum (listinn er hvorki tæmandi né í réttri tímaröð): Dómsmálaráðuneytið, Lögreglan í Reykjavík, Þjóðleikhúsið, Hollustuvernd ríkisins, Honda á Íslandi (Bernhard ehf.), BMW á Íslandi (Bílaumboðið ehf.), Ellingsen ehf., Skíðaskálinn Hveradölum, Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf., Skógræktarfélag Reykjavíkur, Iceland Global Refund, Ökukennarafélag Íslands, Ökuskólinn í Mjódd, Málning ehf., Bakarí Sandholt, Samskipti ehf., Grafarvogs Apótek, Slökkvilið Reykjavíkur, Norræna umhverfismerkið, Kúnígúnd, Kaffitár-kaffihús/kaffibrennsla, Teppaland ehf., DV, Úrvalsbækur, Kjarnavörur/Sultu- og efnagerð bakara, Sanitas ehf., Kirkjuhúsið, Skálholtsútgáfan, Biskupsstofa, HTH á Íslandi, Friðrik A. Jónsson ehf., Sportvörugerðin, Tímadjásn, Zimsen flutningsmiðlun, Flutningsmiðlunin, Seven Up International, Nathan & Olsen, Tjarnarskóli-einkarekinn grunnskóli, Plastprent, Fálkinn ehf. og margir fleiri. Auk fyrrnefndra mætti telja nokkur af þeim helst sem ég starfaði með sem starfsmaður hjá Auglýsingastofu Ólafs Stephensen (ÓSA), á árunum 1985 til 1988: Flugleiðir, Visa Ísland, IKEA, Hagkaup, Málning, Hótel Esja, Íslenska útvarpsfélagið, KR-flugeldar, Ferðaskrifstofan Útsýn, Gatnamálastjórinn í Reykjavík, Skipaútgerð ríkisins og fleiri. Viðtal við EE í Sveitarstjórnarmálum; Flugeldasýningar eða stefnumarkandi áætlanir (pdf-snið) : www.norema.is/uploads/sveit.pdf |


